sunnudagur, 30. ágúst 2009

Rakst fljúgandi furðuhlutur á vindmyllu?

Frá því var sagt í fréttum RUV 8. janúar 2009 að lögreglan í Lincolnskíri á Bretlandi klóraði sér nú í kollinum yfir skemmdum á stórri vindmyllu sunnudaginn 4. janúar s.l. Áhugamenn um fljúgandi furðuhluti segja skýringuna liggja í augum uppi, segir ennfremur í fréttinni.

Af einhverjum ástæðum hefur 20 metra langt blað á stórri vindmyllu við bæinn Conisholme rifnað af og annað er stórskemmt. Engin augljós skýring blasir við en kalkúnabóndi sem býr í grenndinni segist snemma á sunnudagsmorgun hafa séð torkennilegt ljós skammt frá vindmyllunni.

Ljósið hafi verið hvítt en jaðrarnir appelsínugulir. Hjón sem búa skammt frá myllunni segjast hafa heyrt brothljóð einhvern tíma um þetta leyti en ekki séð neitt og fullorðin kona náði mynd af einhvers konar ljósi. Fjölmargir áhugamenn um fljúgandi furðuhluti hafa og tilkynnt um hluti á lofti um síðastliðna helgi. Eigendur myllunnar hafa enga skýringu á skemmdunum á henni en segja ekkert þessu líkt hafa gerst áður. Breska varnarmálaráðuneytið ætlar ekki að rannsaka málið segir ekkert benda til að þetta atvik ógni öryggi breska heimsveldisins.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Athugasemdir: