sunnudagur, 30. ágúst 2009

Annars heims vera á myndbandi?

Nýlega var sagt frá því í fréttamiðlum að óvenjuleg upptaka hafi náðst af því sem virðist vera annars heims drengur eða vera á gangi í verslunarmiðstöð í Chile í Suður-Ameríku.

Er svo að sjá sem veran gangi meðal fólksins í verslunarmiðstöðinni og síðan í gegnum hurð áður en hún gengur út úr sjónsviði myndavélarinnar.

Ekki hefur enn heyrst hvort einhverjar rannsóknir hafi farið fram á myndbandinu með tilliti til hugsanlegrar fölsunar eða þess möguleika að fengist hafi verið við það á einhvern hátt.

Að því er virðist er þetta upptaka úr öryggismyndavél.

Myndskeiðið má sjá HÉR.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Athugasemdir: